Fyrirtækið

Í einum grænum er dótturfyrirtæki Sölufélags garðyrkjumanna og var stofnað 2004 með það að leiðarljósi að fullnýta uppskeru grænmetisbænda.
Markmiðin eru að koma nýjum vörum á framfæri og bjóða neytendum upp á fullunna vöru unna úr íslensku grænmeti. 

Mikil vöruþróun hefur átt sér stað í gegnum árin og bíður fyrirtækið nú upp á  fjölbreytta og breiða vörulínu.

Sjá nánar vefsíðu Sölufélags garðyrkjumanna islenskt.is